Bluetti á Íslandi í samvinnu við Bluetti International og eigendur Grundar I og II í Eyjafirði voru að klára uppsetningu á Bluetti vara rafkerfi fyrir fjósið á bænum. EP2000 kerfið sér um að vakta rafmagnið fyrir fjósið og tryggja rafmagn án þess að rof komi á notkun. Bluetti EP2000 kerfið sér um að tryggja rekstur tveggja Lely mjaltaþjóna, mjólkurkælis, loftpressu og fæðusnigils.
"Við ákváðum að prófa þetta þar sem ég hef verið að fylgjast með þessum búnaði m.a. út af vinnu minni. Upp koma reglulega spurningar um sjálfbærni sér í lagi orkulega séð. Mest tengt íbúðarhúsnæði og skipulagi byggðar. Mér fannst þessi búnaður frá Bluetti spennandi sem varaafl og um leið með möguleika á hleðslu með umhverfisvænum orkugjöfum, t.d. sólarpanelar eða vindorku" segir Guðjón Þ. Sigfússon verkfræðingur og eigandi Grundar.
Bluetti kerfið á Grund er samsett af 8 stk. af - 7000 Wh rafhlöðum og 14 kw inverterum. Það þýðir að búið er nokkuð öruggt um að hafa rafmagn fyrir fjósið í ca . 6 klukkutíma miðað við samtímatnotkun 0,75 og 9 tíma m.v. 0,5 í samtímanotkun. Kerfið er sítengt og er alltaf í hleðsu og reiðubúið að taka við um leið og truflun eða rof verður á raforku frá landskerfinu.
Frá uppsetningu á Bluetti á Grund í Eyjafirði
Halldór Örn, bóndi á Grund I og II í Eyjafirði, veit nákvæmlega hvað skiptir máli þegar kemur að öruggri mjólkurframleiðslu. Á búinu eru tveir Lely mjaltaþjónar – og til að tryggja að allt gangi snurðulaust, var valið BLUETTI vara-orkukerfi sem hluta af rafkerfi búsins.
„Í matvælaframleiðslu er rafmagn öryggismál – og það þarf allt að virka ... alltaf,“ segir Halldór.
Þegar rafmagn fer – tekur Bluetti við á sekúndubroti
Rafmagnið frá Bluetti kerfinu tekur við á innan við 10 millisekúndum þegar rafmagn frá landsnetinu dettur út. Þetta þýðir að mjaltaþjónar, dælur, kælikerfi, ljós og öryggisbúnaður halda áfram að virka – án þess að reksturinn hiksti. Það skiptir máli – því mjólkun, kæling og vöktun má ekki stoppa, ekki einu sinni í mínútu.
EP2000 kerfið er tilbúið til að taka á móti orku frá sólar- og birtu sellum sem hæglega geta séð tækjum fjóssins fyrir stórum hluta rafmagns á ársgrundvelli og stefna eigendur bússins að setja upp sólarsellulkerfi fljótlega á þaki fjóssins.
Hreint, hljóðlaust og viðhaldslaust varaafl
EP2000 Bluetti vara-orkukerfið sem Halldór notar er:
* ✅ Ódýrt í uppsetningu – Rafvirki er ca dag eða skemur að tengja kerfið
* ✅ Viðhaldslaust – ekkert viðhalda eða þjónusta
* ✅ Stjórnborð – stjórnað úr farsíma
* ✅ Hljóðlaust – engin hávaðamengun eða truflun í umhverfi dýra
* ✅ Hreint – engin olía eða útblástur
* ✅ Sólarvænt – hægt að hlaða með sólarsellum og spara þannig raforku
* ✅ Stækkanlegt – auðvelt og ódýrt að stækka kerfið
Hentar bændum sem vilja sjálfbærni og öryggi
Bluetti varaafl, er fullkomin lausn fyrir bændur, garðyrkjustöðvar og matvælaframleiðendur sem vilja:
* Halda rekstrinum gangandi óháð truflunum
* Notast við umhverfisvæna og hreina orku
* Minnka viðhaldskostnað og flækjur
„Engin olía. Enginn hávaði. Engar áhyggjur.“
Þannig lýsir Halldór þessu – og við getum ekki verið meira sammála.
👉 Kynntu þér lausnir Bluetti fyrir bú og framleiðslu á www.bluetti.is eða hafðu samband til að fá ráðgjöf í 680 6000 eða jax@jax.is
Deila:
Diddi og Ólafía með glænýtt rafmagn í bílnum – þökk sé Bluetti!